Jæja ætli það sé ekki best að fara blogga sérstaklega fyrir hana
Möggu mína og Eddu Linn. Við skvísurnar í vinnunni hittumst núna á
þriðjudaginn og fórum út að borða á Selfossi... rosa góður matur og
auðvita tróð maður allt of mikið í sig.
Við Rúna vorum góðar
saman á leiðinni í þokunni það sást bara ekki baun. Ég mundi eftir
að taka tipp í túni2 með mér og láta Möggu hafa enda var Hraun
loksins full klárað af minni hálfu jehhhhhhh
Takk fyrir kvöldið stelpur þetta var rosalega gaman verðum
endilega að endurtaka þetta sem fyrst. Áttum við líka ekki alltaf
eftir að fara á árshátið hehe.
Á sunnudeginum var haldið babyshower (hvernig sem það er
skrifað) fyrir Eddu Linn hún var svaka hissa allt skreytt í bleiku
og bláu og borðað blá köku og að sjálfsögðu gefnir pakkar 
Búið að vera nóg eða gera ég hélt frænkuboð fyrir frænkur hans
Trausta fyrir viku síðan það var komið að mér það var baka brauð og
allers reynt að vera smá húsmóðir
Á miðvikudaginn fórum við Erna (sem er að vinna með
mér fyrir þá sem ekki vita) að hrofa á KF nörd vs FH það var
bara nokkuð gaman og svaka stuð, þrátt fyrir að ég sé farin að sjá
ferlega illa. Þar sem liðin voru í ljósbláum búningum og hvítum
fannst mér ekki mikill munur á liðinum fyrir utan spilmennsku
kannski 
Síðan fórum við Erna í verslunarleiðangur í Kringluna í gær og
vorum að versla í 4 tíma og afraksturinn voru 3 bolir, peysur og
belti. Trausti gaf mér pening sem ég átti að eyða bara í mig jehhh
svaka pæja
Annars er bara allt gott að frétta erum að fíla okkur í tætlur í
"nýju" íbúðinni í þessu svaka mikila plássi. Edda Linn og Magga mín
þið verðið að kíkja fljótlega í heimsókn.
Já með forleifahittinginn þá held ég að Úlla var að spá í að
halda næst þið verðið bara slást um það hehe bara sem hentar best
en hann á alla vega að vera í október finnst ykkur það ekki?
Kv. skvísin sem er svo ánægð með öll nýju fötin sín að það á að
fara aftur að kaupa sér einn bol í viðbót og afmælisgjöf handa
Ernu.